Áfangastaður
Hvert

Rán Bjargar

Rán Bjargar Vestrahorn

Rán Bjargar fangar íslenskt landslag á dramatískan hátt með ljósmyndum sínum. Myndefni hennar má finna víða á vef Key to Iceland en okkur langar til að kynnast henni betur og fá innsýn í líf og hugarheim atvinnuljósmyndara sem elskar íslenska náttúru og lætur hana tala í gegnum linsuna á ógleymanlegan hátt.

Ólst upp í myrkrakompu

“Ég er búin að vera innan um ljósmyndun frá því ég var smábarn og segi stundum í gríni að ég sé alin upp í myrkrakompu, en pabbi minn stundaði filmuljósmyndun af mikilli ástríðu á tímabili og ég fékk að taka þátt í ferlinu með honum. Svo það má í raun segja að þetta hafi byrjað þá að meitlast inn í kjarnann minn, en það var árið 2012 sem þetta tók formlegra stefnu, þá byrjaði ég að mynda fyrir aðra og stofnaði minn eigin rekstur, sem ég hef unnið að síðan. En myndavélin hefur í raun alltaf verið partur af mér.”

Rán hefur átt sér ýmsar fyrirmyndir í ljósmyndum í gegnum tíðina en efstur í huga hennar er Edward Curtis, bandarískur ljósmyndari sem bjó með og myndaði Indíána í Norður-Ameríku.

“Hann skráði og varðveitti lífsvenjur mismunandi ættbálka sem voru smám saman að hverfa, bæði með ljósmyndum og hljóðupptökum. Ég lærði um hann í Tækniskólanum þegar ég lærði ljósmyndun þar. Hann á alveg magnaðar myndir sem einhvern veginn töluðu til mín og síðan þá hef ég bæði eignast verk eftir hann og bækur. Hann var einstakur listamaður.”

Náttúran er nærandi

Rán er þekkt fyrir sinn einstaka, ögn dramatíska stíl við að mynda íslenskt landslag en hvað er það við að mynda íslenska náttúru sem heillar hana?

“Að mynda íslenska náttúru er eins og vítamínsprauta fyrir mig, ef ég fæ ekki skammtinn minn reglulega, get ég orðið hálf óþolandi. Ég finn alltaf meira fyrir því eftir því sem árin líða að ég þarf að sleppa úr þessu ástandi sem samfélagið og við sjálf setjum okkur í; hraðann, skrollið og neyslu ruglið. Það er ómissandi að komast frá því og sitja bara undir einhverju fjalli eða við læk í smá stund. Þó lífið sé auðvitað ekki alltaf svo einfalt. “

Rán Bjargar
Rán Bjargar Gunnuhver
Rán Bjargar Eyrabakki
Rán Bjargar
Rán Bjargar Gunnuhver
Rán Bjargar Eyrabakki

Barðaströndin þar sem hjartað slær

Rán er ættuð frá Vestfjörðum og þegar hún er spurð hver sé eftirlætis staðurinn hennar til að mynda, stendur ekki á svarinu:

“Þessi er auðveld. Barðaströnd á Vestfjörðum. Ég er ættuð þaðan og þess vegna er svarið ekki alveg hlutlaust. En fegurðin þar er ólýsanleg og þar næ ég ró og fæ innblástur sem ég næ síður annars staðar. Þar er líka ekki mannmergð og brjáluð umferð sem er ágætis tilbreyting frá Suðurlandinu. Það er alls ekki erfitt að vera þar með myndavél og ég er ennþá að finna staði þar sem ég hef aldrei komið á.”

Þrátt fyrir að Vestfjarðatenginguna hefur hún þó aldrei komið til Hornstranda en það er staður sem hana dreymir um að mynda.

Rán Bjargar Vestfirðir
Rán Bjargar - Barðaströnd Vestfirðir
Rán Bjargar Vestfirðir
Rán Bjargar Vestfirðir
Rán Bjargar Vestfirðir
Rán Bjargar Vestfirðir
Rán Bjargar - Barðaströnd Vestfirðir
Rán Bjargar Vestfirðir
Rán Bjargar Vestfirðir
Rán Bjargar Vestfirðir

Lýsingin lykilatriði

Rán lýsir ljósmyndastíl sínum sem kraftmiklum, dramatískum og ófyrirsjáanlegum, svolítið eins og Ísland sjálft.

“Ég legg mikla áherslu á náttúrulegt ljós og litina eins og þeir birtast í raun og veru. Mér finnst best að taka myndir þegar það er skýjað frekar en heiðskírt til að fá smá þyngd í umhverfið. Ég hef alltaf laðast meira að því. Á Íslandi eru kjöraðstæður fyrir þetta því hér er auðvitað oft skýjað og þungbært veður. Það er ágætt því þá get ég slakað á í þau örfáu skipti  sem sólin kemur.”

Til að fanga stemninguna og orkuna á hverjum stað gætir hún þess að hafa augun opin og kanna umhverfið vel áður en hún fer að nema það í gegnum myndavélina, þrátt fyrir að myndavélin sé henni eins og annað skynfæri. 

“Ég hef aldrei skilið þegar fólk hoppar út úr bíl, tekur mynd og hoppar svo aftur upp í bílinn án þess að taka neitt inn eða horfa á það sem það var að taka mynd af. Þetta verður að skilja eitthvað eftir sig finnst mér. Ég reyni svo að sjá einhverja ramma fyrir mér og vinna í takt við aðstæður hverju sinni og taka þær í sátt hverjar sem þær eru. Ég leita eftir forgrunni, bakgrunni og lýsingunni sem hentar best. Svo stundum er þetta bara eitthvað út í loftið. Það fer allt eftir hvert verkefnið er. Lang oftast fæðist stemningin og orkan bara á staðnum. Það skapast eitthvað flæði sem leiðir mig áfram og ég fylgi. Umfram allt reyni ég að gera þetta á minn hátt og hafa þetta eftirminnilegt.”

Að fanga óvænt augnablikið

Bestu myndir Ránar segir hún að komi yfirleitt þegar hún er ekki með neitt plan – þegar hún fer bara af stað með myndavélina með sér og eltir það sem henni finnst fallegt og hugmyndirnar kvikna á staðnum. 

“Náttúran sér alveg um að sýna sig, maður þarf bara að hafa augun opin. Lokamyndin kemur svo oft ekki fyrr en mörgum vikum eða mánuðum síðar því ég þarf stundum að leggja verkefnin frá mér nokkrum sinnum áður en ég klára þau."

"Ósk mín er að fólk sé að sjá eitthvað sem það hefur ekki séð 100 sinnum áður og átti sig jafnvel ekki endilega á hvað sé á myndinni og þurfi að velta henni aðeins fyrir sér. Ég vil vekja upp forvitni fólks og vonandi skilja eitthvað eftir.”

Verðskulduð viðurkenning

Á dögunum tók Rán þátt í stórri ljósmyndakeppni á vegum FEP (Federation of European Photographers) eftir hvatningu frá vini sínum. Þrátt fyrir að vera feimin við slíkt ákvað hún að slá til og lenti í öðru sæti í sínum flokki sem snerist um náttúruljósmyndun. 

“Sendar voru inn 3200 myndir frá 340 ljósmyndurum víðsvegar í Evrópu svo það var mikill heiður að fá þessa viðurkenningu fyrir myndirnar mínar. Úrslitin voru svo kynnt á stórri ljósmyndahátíð í Danmörku á dögunum og það var rosalega gaman að geta verið viðstödd, hitta aðra ljósmyndara allstaðar að úr Evrópu og mynda tengsl og sjá allar þessar frábæru myndir í keppninni. Þetta var alveg keppnis, eins og þeir segja.”

Rán Bjargar verðlaunamynd
Rán Bjargar verðlaunamynd
Rán Bjargar verðlaunamynd
Rán Bjargar verðlaunamynd

Mikilvægt að móta sinn eigin stíl

Rán hvetur þá sem hafa áhuga á ljósmyndun til að nýta hvert tækifæri og mynda í alls konar aðstæðum þar til þeir finna hverju þeir laðast sérstaklega að. Þá sé hægt að einbeita sér að því að viðfangsefninu og byrja að safna í möppu. 

“Ég er hliðholl hvers konar námi og mæli með að sækja sér þekkingu, hvort sem það er í skóla, hjá öðrum ljósmyndara  eða bara á youtube. Það er allt svo aðgengilegt í dag. Það er gott að skilja fræðin, þekkja búnaðinn sinn og heyra frá öðrum sem eru að miðla reynslu sinni þó að mikilvægasta tólið sé gott auga! Ekki elta aðra í myndefni eða stíl, finndu út þitt eigið, hvað þér finnst fallegt og hvað talar til þín, hvort sem það er fólk, landslag, dýr eða húsgögn. Talaðu við aðra ljósmyndara og farðu á ljósmyndatengda viðburði. Það er mjög mikilvægt að mynda tengsl í ljósmyndaheiminum. Svo er gott að vona það besta en búast við allskonar því í dag eru allir með myndavél og heimur ljósmyndara er mikið hark. En með dugnaði og vilja er margt hægt. Ekki gefast upp og haltu áfram. Ekki vera feimin, segðu frá sjálfum þér, komdu þér á framfæri og ef þú hefur hæfileika mun einhver bíta á agnið. Svo er gott að vera með góða heimasíðu og samfélagsmiðla því þar er markaðurinn í dag að miklu leyti.”

Undirbúningurinn skiptir máli

Ómissandi búnaður ljósmyndarans í tökum í íslenskri náttúri eru að sögn Ránar tvímælalaust góðir hanskar. Auk þess er góð myndavél sem þolir vel veðuraðstæður og réttar linsur auðvitað nauðsyn sem og að vera klæddur fyrir tilefnið í takt við veðuraðstæður. 

“Ekki verra að vera á góðum 4x4 bíl til að komast ferða sinna um vegi landsins, sem eru allskonar eins og við vitum. Svo fer ég aldrei úr húsi án þess að taka með mér góðan bakpoka, auka sokka, nesti og nóg af klútum til að þurrka búnaðinn minn. Það er líka rosalega gaman að eiga dróna og ná þannig allt öðru sjónarhorni á landslagið, svo taktu hann með ef þú átt hann”

Horfðu lengra

Eftirminnilegasta myndataka Ránar var þegar hún fór í skipulagða ferð á Breiðamerkurjökul sem snerist aðallega um að skoða íshellana þar. Annar leiðsögumaðurinn sem var vinkona Ránar bauðst til að fara með hana lengra og þá opnaðist hálfgerður töfraheimur.

“Við gengum á jöklinum þar til við komum að svæði þar sem yfirborð jökulsins er eins og öldugangur, það eina sem þú sérð eru endalausar bylgjur af ís. Svo gengum við enn lengra þar sem ísinn brotnar af út í lónið og margra metra ísspjót blasa þar við manni. Þetta er það fallegasta sem ég hef séð. Ég hafði séð af þessu margar myndir en það er allt annað að sjá þetta í návígi. Þá gerir maður sér betur grein fyrir skalanum. “

Rán Bjargar Breiðamerkurjökull
Rán Bjargar Breiðamerkurjökull
Rán Bjargar Breiðamerkurjökull
Rán Bjargar Breiðamerkurjökull

Ómissandi áfangastaðir ljósmyndarans

Aðspurð hvaða staði á Íslandi hún myndi helst mæla með fyrir ferðamenn og ljósmyndaáhugafólk, nefndi Rán nokkra sem hún telur ómissandi:

  • Dynjandi
  • Krýsuvík, 
  • Hálendið
  • Borgarfjörður eystri
  • Breiðamerkurjökull
  • Örlygshöfn
  • Hellnar
  • Sogin
  • Hvannagil
Rán Bjargar Dynjandi
Rán Bjargar Krysuvik
Rán Bjargar Hálendi
Rán Bjargar Borgarfjörður Eystri
Rán Bjargar Breiðamerkurjökull
Rán Bjargar Örlygshöfn
Rán Bjargar Hellnar
Rán Bjargar Sogin
Rán Bjargar Hvannagil
Rán Bjargar Dynjandi
Rán Bjargar Krysuvik
Rán Bjargar Hálendi
Rán Bjargar Borgarfjörður Eystri
Rán Bjargar Breiðamerkurjökull
Rán Bjargar Örlygshöfn
Rán Bjargar Hellnar
Rán Bjargar Sogin
Rán Bjargar Hvannagil
Rán Bjargar Rolla

Við báðum Rán um að lýsa Íslandi í einni ljósmynd og svarið var einfalt: Rolla út í vegkanti! 

“Það er mjög íslenskt og eitthvað sem allir íslendingar og flestir gestir þekkja og tengja við. Skulum hafa grænan mosa í hrauni á þessari mynd líka, foss í bakrunni og eitthvað mjög dramatískt fjall með þoku á toppnum. “

Ævintýrin nær en þú heldur

Þegar Rán er ekki að munda myndavélina eyðir hún tíma sínum í eftirvinnslu myndanna á vinnustofu sinni að miklu leyti til.

“í frítíma reyni ég að eiga gæðastundir með fjölskyldunni minni, svona þangað til börnin hætta að nenna hanga með okkur. Okkur finnst gaman að ferðast, fara á skíði og í frisbígolf svo eitthvað sé nefnt. Við maðurinn minn göngum mikið á fjöll með vinum okkar og svo syng ég í kór með frábærum konum og stunda líkamsrækt.”

Það má svo sannarlega segja að líf Ránar einkennist af ævintýramennsku sem venjulegt fólk á það til að víla fyrir sér. Rán slær þó á það og segir að ævintýrin þurfi ekki endilega að kosta mikið eða vera flókin.

“Hér á Íslandi eru möguleikarnir óteljandi, og stundum byrjar ævintýrið bara með því að taka sér frídag og fara út í náttúruna þar sem maður nær að tengjast sjálfum sér og umhverfinu. Annars mæli ég hiklaust með að bóka einhverja spennandi ferð, t.d. jöklaferð, fjórhjólaferð eða gönguferð á hálendið. Það er töfrum líkast og eitthvað sem þú munt aldrei gleyma.”

Þeir sem hafa áhuga á að kynnast verkum Ránar nánar bendum við á heimasíðu hennar ranbjargar.com.

Rán Bjargar Fjallganga
Rán Bjargar Vestmannaeyjar
Rán Bjargar Krysuvik
Rán Bjargar Reykjanes Karlinn
Rán Bjargar Fjallganga
Rán Bjargar Vestmannaeyjar
Rán Bjargar Krysuvik
Rán Bjargar Reykjanes Karlinn

Takk fyrir að lesa þessa síðu. Við vonum að upplýsingarnar hafi verið gagnlegar – ef ekki, endilega láttu okkur vita á [email protected]