Spurt og svarað
Kæri BERGMÁLS gestur;
Stóri dagurinn nálgast og við viljum varpa ljósi á það helsta sem okkur hafa borist fyrirspurnir um.
Afhending armbanda og útprentaðra bílastæðapassa fer fram í verslunum 66 North í Kringlunni og Hafnartorgi 18 og 19 júní.
18 og 19. Júní: 66 Norður - Kringlan - 10:00 - 18:30
18. júní: 66 Norður - Hafnartorg 10:00 - 18:00
19. júní: 66 Norður - Hafnartorg 10:00 - 20:00
Einnig verður hægt að sækja armbönd þann 20. júní í Klettagörðum 27 þar sem rúturnar eru staðsettar til brottfarar.
Armbönd verða afhent á tónleikasvæði á þjónustuborði merktu:
BOX OFFICE
Þeir sem hafa armband komandi á svæðið fá hraðari afgreiðslu inn á svæðið.
Aðgöngumiðar verða seldir við tvo aðalinnganga tónleikasvæðisins svo fremi að ekki verði uppselt.
Nýttu þér sætaferðir!
Við hvetjum við þig eindregið til að tryggja þér sætaferð hið allra fyrsta því það er þægilegasta og öruggasta leiðin til að komast fljótt og klakklaust til og frá Þingvöllum þennan dag - beint að Haki þaðan sem skundað verður niður Almannagjá að tónleikasvæðinu.
Rúturnar aka frá Klettagörðum 27 þar sem eru næg bílastæði og byrja að ferja fólk frá kl. 10:00 því dagskráin hefst kl. 11:00 á Valhallarsviðinu með Ladda, Nóa Klose og fjölda frábærra listamanna á öllum aldri.
Næg bílastæði eru að Klettagörðum fyrir þinn bíl.
Löggæsla verður mikil í Þingvallasveit þennan dag og munum hið sígilda, að:
Eftir einn - aki ei neinn!
Brottfarir hópferðabíla verða síðan frá Haki til Reykjavíkur á klukkutíma fresti frá kl 19:00.
Hægt er að tryggja sér sæti á moment.is og nú hefur greyline.is einnig boðið fram þjónustu sína.
Einkabíllinn rúmar 5 manns!
Þeir sem ekki eiga annars kost en að koma akandi á einkabíl þurfa að tryggja sér bílastæði án tafar og það á:
Einkabílar aka fram hjá þjónustumiðstöðinni Haki að bílastæðinu á Brúsastöðum, hvaðan skutlur aka gestum að aðalinngangi.
Skutlur aka gestum einnig frá bílastæðinu við Tæpastíg og við Leirur - og aka fólki síðan aftur að bílastæðum sínum eftir tónleika.
Þeir sem ekki geta nálgast armböndin og bílastæðapassana á þessum tveimur stöðum eru beðnir að prenta sjálfir út bílastæðapassana og aðgöngumiðana og framvísa við komuna - mun fljótlegra fyrir alla er þó að hafa armböndin á sér og bílastæðapassana sýnilega á mælaborðinu við framrúðu hvers ökutækis.
Þeir sem leigja sér sérstakar rútur þurfa að skrá komutíma sinn, fjölda farþega og bílnúmer á: [email protected] til að öðlast heimild til að aka beint að Hakinu með tónleikagesti.
Bílaumferð verður lokað fyrir aðra en tónleikagesti frá kl. 15:00 í kring um tónleikasvæðið: Við Uxahryggi, Grafningsveg og við Miðfell á Lyngdalsheiði.
Við leggjum mikla áherslu á gott aðgengi fyrir heyfihamlaða og að þörfum þeirra sé hugað á tónleikasvæðinu. Gestir í hjólastólum eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna komu sína á [email protected] með yfirskriftinni:
Aðstoð við hreyfihamlaða.
Sérstakur útsýnispallur fyrir hreyfihamlaða er síðan í boði inn á svæðinu.
Önnur mál
Allt um umferðastýringu á svæðinu má finna HÉR
Öll umferð báta og annarra farartækja, er bönnuð á Þingvallavatni innan þjóðgarðsins, frá kl.08.00 20. júni til miðnættis 20.júní.
Hestaumferð er ekki heimiluð á þessum degi á tónleikasvæðinu frekar en gæludýr.
Ekki er heimilt að bera með sér áfengi eða aðrar veitingar inn á svæðið.
Þegar fólk er komið á tónleikasvæðið er því heimilt að hverfa á brott og koma aftur inn síðar.
Af öryggisástæðum heimilar lögregla hvorki tjaldstóla né regnhlífar á tónleikasvæðinu.
Komi fólk frá Laugarvatni eða Selfossi með bókað bílastæði á Brúsastöðum eða Tæpastíg er mikilvægt að það komi á svæðið fyrir kl 15:00. Eftir kl 15:00 er umferðarstjórn með þeim hætti að lögreglufylgdar er þörf sem gæti þýtt tafir.
Myndarlegu veitingaþorpi hefur verið komið fyrir gegnt tónleikasvæðinu og öll aðstaða þar til fyrirmyndar auk þess sem miklum fjölda salerna hefur verið komið fyrir um allt tónleikasvæðið.
Drykkjar- og matarvagnar auk salernisaðstöðu er að finna við bæði Vallahallarsvið og aðalsviðið að Dynbergi.
Upplýsingavefurinn okkar um helstu atriði er hér þar með taldar algengar spurningar og svör.
Við leitumst við að svara einstökum fyrirspurnum eftir fremsta megni á netfanginu: [email protected] en biðjum ykkur að sýna okkur þolinmæði í ótrúlega miklu annríki okkar tengdu viðburðinum.
Megi Bergmál síðan óma lengi og vel í hugum okkar allra og hjörtum! ❤️
Dagsetning
Laugardagur 20. júníTími
11:00–24:00Staðsetning
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, ÍslandiAðalsvið
Dynberg (frá 14:00–24:00)Fjölskyldusvið
Valhalla (frá 11:00–18:00)Lengd viðburðar
BERGMÁL á ÞINGVÖLLUM er eins dags viðburðurAðgangur: Frá Hakinu , frá Tæpastíg og frá Leirum
Varningur:
Opinber BERGMÁLS - varningur verður til sölu á svæðinu á sérstökum sölusvæðum.Tapað & Fundið:
Muni sem ekki verða sóttir á staðnum, má nálgast með því að senda tölvupóst eftir viðburðinn. Ósóttir munir verða meðhöndlaðir samkvæmt reglum viðburðarins og lýsa má eftir týndum munum að viðburði loknum á : [email protected]
Annað:
- Aðgangur er heimilaður með gildum miða.
- Allir gestir fara í gegnum öryggisskoðun við inngang.
- Ekki er heimilt að taka með sér mat eða drykki inn á svæðið.
- Töskur verða skoðaðar við inngang.
- BERGMÁL Á ÞINGVÖLLUM er FÁGÆT mennintónleikaupplifun í helgum þjóðgarði Íslands sem er á heimsminjaskrá UNESCO.
- Gestir eru beðnir um að sýna náttúrunni, öðrum gestum og svæðinu virðingu og nærgætni.
- Faglegar myndavélar eru leyfðar.
- Drónar eru bannaðir á öllu hátíðarsvæðinu.
Fundnir munir verða geymdir á aðalsvæði hátíðarinnar, að Dynbergi.
Muni sem ekki verða sóttir á staðnum, má nálgast með því að senda tölvupóst eftir viðburðinn. Ósóttir munir verða meðhöndlaðir samkvæmt reglum viðburðarins og lýsa má eftir týndum munum að viðburði loknum á [email protected]Hvar & hvernig kaupi ég miða á BERGMÁL á ÞINGVÖLLUM?
Miðasala fer fram á: moment.is.
Miðaverð:
Almennt miðaverð: 23.990 kr.Athugið að sama miðaverð gildir fyrir alla gesti, óháð aldri.
Ekki er boðið upp á sérstök verð fyrir tiltekna aldurshópa og því ber að kaupa miða fyrir alla sem hyggjast mæta á tónleikana. Allir gestir þurfa að vera með gildan miða.Ef þú fékkst ekki miðann eftir kaup:
Vinsamlegast hafið samband við: [email protected]
Hversu margir miðar eru í boði í hverri sölu?
10 miðar.
Miðar & armbönd
Miðar eru stafrænir og framsendir með tölvupósti.
Mælt er með að allir gestir verði með armband á sér frá upphafi til loka viðburðarins.Armbönd verða afhent dagana 18 og 19 júní.
18 og 19 júní , 66 norður - Kringlan - 10:00 - 18:30
18 júní 66 norður - Hafnartorg 10:00 - 18:00
19 júní 66 norður - Hafnartorg 10:00 - 20:00
Einnig verður hægt að sækja armbönd þann 20 júní í Klettagörðum 27 þar sem rúturnar eru staðsettar til brottfarar. Armbönd verða afhent á tónleikasvæði á þjónustuboði BOX OFFICE. Þeir sem sækja armböndin sín áður en haldið er til Þingvalla fá hraðari afgreiðslu inn á svæðið.Allir eru velkomnir á viðburðinn Bergmál á Þingvöllum
Heimilt er að koma með barnavagna og kerrur.
Ekki er boðið upp á sérstök miðaverð fyrir tiltekna aldurshópa eða aðra.
Samgöngur:
Staðsetning:
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er um 45 mínútna akstursleið frá Reykjavík.
Möguleikar:
Hópferðir bjóðast fram og til baka á hálftíma fresti frá kl. 10:00 árdegis laugardaginn 20.júní. Fargjald fram og til baka er kr. 8.900 og hægt að kaupa á moment.isHópferðabílarnir leggja af stað frá Klettagörðum 27 ( við Sundahöfn) og aka þeir gestum beint að aðalinngangi tónleikanna, Hakinu. Frá kl. 20:00 hefjast sætaferðir til Reykjavíkur sem hefja för þegar viðkomandi hópferðabíll hefur fyllst. Hópferðafutningar verða með 100 hópferðabílum þar til síðasti gestur með hópferðamiða yfirgefur svæðið.
Verða bílastæði fyrir einkabíla í boði á Þingvöllum?
Já. Bílastæði verða í boði að Leirum næst tónleikasvæðinu, og að Tæpastíg nálægt tónleikasvæðinu. Verð fyrir allan daginn er kr. 1.490 ( kr.1.000 bílastæðagjald auk þjónustu-og kortagjalds kr. 490).Innifalið er skutl að aðalinngangi tóneikasvæðisins og umferðarstýring innan bílastæða.
Til að tryggja öryggia vegfarenda mun lögregla annast umferðarstjórnun og eftirfarandi veglokanir gilda frá kl. 15:00 á öllum helstu vegum sem liggja að og í gegnum þjóðgarðinn. Lokanir verða í gildi: að vestan við Grafningsafleggjara, við Miðfell að austanverðu og norðan við Þingvelli á Uxahryggjarvegi á tímabilinu frá 15:00 til miðnættis.
Búast má við miklu álagi og umferðarþunga allan daginn á Þingvallavegi.
Engin tjaldsvæði tengjast BERGMÁLI á ÞINGVÖLLUM
Ekki er leyfilegt að gista yfir nótt á hátíðarsvæðinu.Ráðlagðar gistingar og bókunarmöguleikar eru í boði í gegnum Key to Iceland.
Í boði eru hótelpakkar á vegum Key to Iceland, sem innihalda:
1. Ýmis fríðindi
2. Þægindi
3. Sveigjanlega afbókun
4. Á besta fáanlega verði.BERGMÁL á ÞINGVÖLLUM leggur áherslu á gott aðgengi fyrir alla.
Gestir sem þurfa sérstaka aðstoð eða afmörkuð útsýnissvæði eru hvattir til að hafa samband við skipuleggjendur fyrirfram á: [email protected]
Fyrir hreyfihamlaða:- Aðgengileg salerni
- Aðgengispallar við aðalsvið
- Sérmerkt aðgengissvæði
- Sérmerkt aðgengileg bílastæði
- Aðgengilegir inngangar við Hakið og Dynberg hjá Leirum
Almennir miðar veita aðgang að öllum almennum svæðum hátíðarinnar og tónleikum að Dynbergi og Vallhallarsviði.
Almennir miðar veita aðgang að öllum almennum svæðum hátíðarinnar og tónleikum.
Á svæðinu er að finna:
- Fjölbreytt úrval matarvagna
- Drykkjarföng - bæði óáfeng og áfeng
- Fjölmörg salerni víðsvegar um svæðið
- Öflug öryggisþjónusta og gæsla
- Læknar, hjúkrunarfólk, hjúkrunaraðstaða og sjúkrabílar á vakt
- Eldvarnareftirlit, hundruðir slökkvitækja og slökkviliðssfólk með þartilbæra slökkviliðsbíla á vakt
Gull aðgangur
Uppfærsla fyrir þá sem eiga nú þegar miða og gull aðgangur fyrir þau sem eiga ekki miða á tónleikana fást á Moment.is
Innifalið í Gullaðgangi:
• Sérinngangur inn á hátíðarsvæðið
• Bergmáls taupoki í takmörkuðu upplagi
• Aðgangur að Gullsvæði með:
– Setustofa og þægileg aðstaða
– Betri salernisaðstöða
– Einkabar með sérstökum drykkjarseðli
– Hleðslustöðvar fyrir síma
– Og fleira
Key to Iceland er stoltur styrktaraðili viðburðarins og hýsir þessa upplýsingasíðu til að veita yfirsýn yfir viðburðinn og gistimöguleika fyrir gesti.
Key to Iceland er ekki skipuleggjandi eða rekstraraðili viðburðarins. Tónaþing og Polar Beat eru skipulags- og ábyrgðaraðilar Bergmáls á Þingvöllum
Key to Iceland býður upp á fjölþætta gistingar- og bókunarmöguleika sem m.a. innibera:
1. Ýmis fríðindi
2. Sveigjanlegar afbókanir
3. Bestu fáanlegu verð
Varðandi gisti möguleika, má hafa samband við:Mikilvægar upplýsingar um bílastæði fyrir Bergmál á Þingvöllum – laugardaginn 20. júní 2026
Að Leirum og Tæpastíg standa til boða niðurgreidd stæði fyrir fólksbíla frá kl. 10:00 um morguninn.
Stæðin þarf að rýma eigi síðar en kl. 03:00 aðfaranótt sunnudagsins 21. júní.Verð fyrir allan tímann er einungis 1.000 kr. + 490 kr. þjónustugjald (alls 1.490 kr.).
Í verðinu er innifalin leiðsögn og skutluþjónusta frá bílastæði að inngangi Bergmáls, sem og skutl frá Haki til baka eftir tónleika.Athugið: Til að komast á þessi stæði þurfa gestir að mæta fyrir kl. 16:00.
Bílastæði við Brúsastaði eru í boði frá morgni til kvölds.
Einnig þarf að rýma þau stæði fyrir kl. 03:00 aðfaranótt sunnudagsins 21. júní.Verð er 4.950 kr. með þjónustugjöldum inniföldum.
Leiðsögn og skutluþjónusta til og frá inngangi Bergmáls er innifalin.Athugið: Við mælum eindregið með því að nýta sætaferðir sem ganga fram og til baka frá kl. 10:00.
Verð fyrir fram og til baka er 8.900 kr.
Smelltu hér!Verum ábyrg
Fyrir þá sem ekki geta nýtt sér sætaferðirnar mælum við eindregið með því að ferðast saman og fylla bíla eins og kostur er. Það dregur úr umferð og minnkar líkur á töfum vegna mikils álags.Til að tryggja þér bílastæði smelltu hér!
Bergmál

Bergmál
BERGMÁL tónleikahátíð fer fram á sumarsólstöðum, 20. júní 2026, í einstöku umhverfi Þingvallaþjóðgarðs.
KALEO stíga á svið á Þingvöllum ásamt völdum hópi listamanna. Með þeim kemur fram öflugt úrval íslenskra tónlistarmanna, þar á meðal Emilíana Torrini, Mugison, Stuðmenn, Helgi Björnsson, Hjálmar, GDRN, Júníus Meyvant, KK og Árný Margrét – ásamt fleiri góðum gestum.
Gull aðgangur
Uppfærsla fyrir þá sem eiga nú þegar miða og gull aðgangur fyrir þau sem eiga ekki miða á tónleikana fást á Moment.is
Innifalið í Gullaðgangi:
• Sérinngangur inn á hátíðarsvæðið
• Bergmáls taupoki í takmörkuðu upplagi
• Aðgangur að Gullsvæði með:
– Setustofu og þægilegri aðstöðu
– Betri salernisaðstöðu
– Einkabar með sérstökum drykkjarseðli
– Hleðslustöðvum fyrir síma
– Og fleira

Skráning á póstlista
Skráðu þig á póstlista Key to Iceland og vertu með þeim fyrstu til að tryggja þér miða á Bergmál

- Fram koma

KALEO
KALEO er íslensk rokkhljómsveit, stofnuð 2012, sem hefur náð miklum alþjóðlegum vinsældum. Hljómsveitin er þekkt fyrir blöndu af blús, þjóðlagatónlist og rokki, með söngvarann Jökul Júlíusson í broddi fylkingar.
-2-1000x1000.jpg&w=2048&q=80)
Mugison
Mugison er íslenskur tónlistarmaður sem flakkar á milli þess að vera Trúbador, Raftrúbador og Rokkskrímsli. Tónlistin getur verið blíð og einlæg eða hávær og rafmögnuð – oft bæði í einu. Á Þingvöllum mætir hann með Hljómsveit.

Hjálmar
Hjálmar er íslensk reggíhljómsveit, stofnuð í Keflavík 2004, sem spilar svokallað „lopapeysu-reggí“ með íslenskum textum. Þeir slógu í gegn með sinni einstöku blöndu af heitu reggí og íslenskri alþýðumenningu, og hafa gefið út margar vinsælar plötur. Hljómsveitin er þekkt fyrir lög eins og „Lof“ og „Vinur í raun“.

Emilíana Torrini
Emilíana Torrini er íslensk-ítalskt söngvaskáld sem hefur notið alþjóðlegrar viðurkenningar, meðal annars fyrir stórsmellinn „Jungle Drum“, sem trónaði á toppi vinsældalista víða um Evrópu. Hún hefur á ferlinum sent frá sér nokkrar plötur sem vakið hafa mikla athygli, þar á meðal Love in the Time of Science, Fisherman’s Woman, Me and Armini, Tookah og nýjustu plötuna Miss Flower.

KK
Kristján Kristjánsson, jafnan þekktur sem KK, er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar og hefur um áratugaskeið verið áberandi rödd í íslenskri tónlist. KK varð hluti af íslensku blúsbyltingunni á áttunda áratugnum og lék meðal annars með Blúskompaníinu á munnhörpu. Ferill KK spannar fjölbreyttan og sterkan lagasafn með plötum á borð við Lucky One, Bein leið, Paradís og Blús, auk fjölda samstarfsverkefna. Hann hefur einnig samið og flutt tónlist fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir.

Helgi Björnsson
Helgi Björnsson stundum nefndur Helgi Björns er íslenskur tónlistarmaður og leikari. Hann var meðal annars í hljómsveitunum Grafík og Síðan skein sól (SSSól). Helgi hefur gefið út allnokkrar sólóplötur líka. Hann var árið 2020 útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur og hlaut fálkaorðuna.

GDRN
Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, betur þekkt sem GDRN, er ein af fremstu tónlistarkonum Íslands í dag. Með einstaka blöndu af poppi, R&B og djassi hefur hún skapað sér sinn eigin hljóm sem fangar áhorfendur um allan heim. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir tónlist sína, meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söngkonu ársins og lag ársins.

Júníus Meyvant
Júníus Meyvant er íslenskur tónlistarmaður og lagahöfundur sem er þekktur fyrir hlýjan og sálrænan popp- og soulhljóm með áhrifum frá folk og R&B. Hann vakti fyrst athygli með laginu Color Decay og hefur síðan gefið út tónlist sem einkennist af sterkum melódíum, mjúkri rödd og tilfinningaríkum textum.

Árný Margrét
Árný Margrét er 24 ára söngvaskáld frá Ísafirði. Hún hóf tónlistarnám aðeins sjö ára gömul og hefur síðan vakið athygli bæði hérlendis og erlendis með einstökum textum og framkomu. Tónlist hennar er indí-þjóðlagatónlist með persónulegum hljómheimi, þar sem hún dregur upp fallegar og sársaukafullar myndir innblásnar af lífi sínu í skugga fjallanna á Vestfjörðum.

Stuðmenn
Stuðmenn - Holdgervingar póst-módernismans á Íslandi. Það sem einkennir helst tónlist STUÐMANNA er að hún á sér engin tiltekin takmörk, er hvorki bundin við stíl, tíðaranda né tískusveiflur. Hún leyfir sér að vera utan allra landamæra og að fara á móti ríkjandi stefnum og straumum hverju sinni.
Okkar helstu styrktaraðilar
Hótel á Bergmál
Við höfum tekið frá herbergi fyrir tónleikagesti í tvær nætur á völdum hótelum í kringum höfuðborgarsvæðið og nágrenni Þingvalla. Þú bókar hótel og miða saman í sama kaupferli í gegnum MOMENT, einfalt og þægilegt.


-2000x1125.png&w=2048&q=80)


.pdf%2520(1)-1-1304x1391.png&w=2048&q=80)

-1-1920x1080.png&w=2048&q=80)
-1-1080x1080.png&w=2048&q=80)

-1920x1080.png&w=2048&q=80)







